Smá vandamál sem tengist „Cumlative Update for Windows 10 í ágúst 2016“ KB3176493
Reikningar í tví eða þríriti skila sér ekki, það er að segja auka afritin skila sér ekki en fyrsta eintakið prentast út á eðlilegann hátt.
Vandamálið tengist öryggisuppfærslu á kernel mode reklum í Windows (MS16-098).
Eina leiðin til að lagfæra þetta í bili er að fjarlægja KB3176493og fela hana í kjölfarið til að hindra að hún fari inn aftur, Microsoft hefur varað við þessu vandamáli og vinnur að lausn vandans en á meðan staðan er þannig þá þurfum við eins og áður segir að fjarlægja uppfærsluuna og koma í veg fyrir að hún fari inn aftur. Það gerum við á eftirfarandi hátt:
- Hægrismella á Start og velja „Program and Features“ smellið á „Installed Updates„.
- Finnið KB3176493 og veljið Uninstall.
- Næst þarf svo að sækja „wushowhide.diagcab“ það er hægt að gera hjá Microsoft eða hjá okkur wushowhide.diagcab (muna að það þarf að taka .zip endingunna af skránni eftir niðurhal).
- Opnið skránna sem var sótt í síðasta skrefi og veljið „Advanced“ (neðarlega vinstra meginn í forritinu).
- Nú þarf að taka hakið úr „Apply repairs automatically“ veljið svo „Next„.
- Næst veljið „Hide Updates„.
- Þegar forritið hefur athugað með tiltækar uppfærslur þá veljið viðkomandi uppfærslu „Cumlative Update for Windows 10 í ágúst 2016“ KB3176493 veljið „Next„.
- Veljið „Next“ verið viss um að það sé hakað við „Hide Updates“ og að rétt uppfærsla sé valinn.
- Skoðið niðurstöðuna og lokið svo forritinu, nú er búið að hindra að viðkomandi uppfærsla fari inn aftur.
Nýlegar athugasemdir