Tölfræði PDF Prenta Netfang

Þetta er tæki til notkunar í Joomla vefumsjónarkerfinu, ætlað til að halda utan um tölfræði leikmanna, viðmótið er aðlagað að leikmönnum knattspyrnufélaga og raðar eftir gerð leikmanns þ.e.a.s markmenn, varnarmenn, miðvallarleikmenn og sóknarmenn.

Kerfið má auðvita aðlaga hvaða íþrótt sem er, einnig má aðlaga kerfið bara til að halda utan um hvaða tölfræði sem er og það getur reiknað alla mögulega hluti út. 

Kerfið er fjöltungumála vænt og kemur uppsett fyrir íslensku sem og ensku. Hægt er að bæta við tungumálum ef óskað er.

Helstu möguleikar á forsíðu:

  • Raða leikmönnum eftir gerð (sóknar, varnar, miðju og markmenn)
  • Uppröðun eftir flestum skoruðum mörkum
  • Uppröðun eftir flestum spiluðum leikjum
  • Uppröðun eftir flestum gulum spjöldum
  • Uppröðun eftir flestum rauðum spjöldum

Helstu möguleikar í umsjón:

  • Nafn leikmanns
  • Skyrtu númer leikmanns
  • Leikjafjöldi
  • Markafjöldi
  • Gul spjöld
  • Rauðspjöld

Smelltu hér til að skoða hvernig kerfið virkar.