Þjónustuvefur
| Forsíða |
| Hafa samband |
| Tölvuviðgerðir - Aðstoð |
| Nethjálp - Tengjast |
| Vefumsjónarkerfi |
| Vefsíðugerð - Aðstoð |
| Vefsíðugerð - Tölfræði |
| Upplýsingar um lén |
| Hraðamæling |
| Tölfræði |
| Myndvinnsla |
| Vefsíðugerð |
|
|
|
|
Við hjá PCs smíðum vefsíður fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Við styðjum við viðskiptavini okkar og látum þá hafa kennsluefni yfir þá þætti umsjónar kerfisins sem þeir óska eftir. Það er ekkert sem ekki er hægt að gera með vefumsjónarkerfið og ef virknin sem viðskiptavinurinn óskar eftir er ekki til þá búum við hana til. Einnig breytum við þeim tækjum sem eru fyrir hendi ef þeir eru ekki samkvæmt kröfum viðskiptavinarins.
Við gerum tilboð ef óskað er og á þróunartíma verkefnisins setjum við upp tilraunavef sem hægt er að nota til að viðskiptavinurinn geti lært að umgangast og nota kerfið. Þá er þetta einnig hentug ráðstöfun sem hjálpar til við að fullkomna verkið áður en að það er sett á endanlegan stað.
Við getum einnig séð um kaup á léni fyrir viðskiptavininn, við sjáum einnig um skráningar á nafnaþjónum og öðrum slíkum tæknilegum atriðum án þess að það hafi aukinn kostnað fyrir för með sér fyrir viðskiptamenn. Hér á síðunni ofarlega til hægri er tengill sem þú getur notað til að hafa samband við tæknimann vegna vefsíðugerðar, hvort sem það er bara til að forvitnast um verð eða annað slíkt.
Við leggjum áherslu á að öll forritun sem frá okkur kemur sé villulaus og kóðinn sé hæfur til að fara í gegnum prófun hjá þeim slíkar prófanir veita (W3C CSS Validation Service). |