Tölvuviðgerðir PDF Prenta Netfang

PCs hefur ekki verið með tölvuviðgerðarþjónustu fyrir almenning, við höfum að mestu bundið þjónustu okkar við fyrirtæki.

Nú hefur orðið breyting á þessu og við ætlum að bjóða tölvuviðgerðir yfir internetið, með þessu viljum við auka þjónustu okkar og verður þessi möguleiki einnig opinn fyrirtækjum til að auka hagræðingu og flýta einfaldri þjónustu sem annars myndi bíða eftir að tæknimaður komi á staðinn.

þetta er þjónusta sem ætti að geta hentað flestum sem geta á annað borð tengst internetinu.

Meðal þeirra þátta sem við ætlum að séu lykilatriði í þessari þjónustu eru:

  1. Vírus, spyware og adaware hreinsun tölvunnar.
  2. Uppsetningar á forritum svo sem netpósti, vírusvörnum og slíku.
  3. Hreinsun tölvunnar þegar hún er orðin of hæg.
  4. Uppsetning á vélbúnaði sem ekki vinnur á réttan hátt.
  5. Kennsla á forrit ef þörf er á.
  6. Lykilorð sem hafa verið vistuð en eru ekki sjáanleg (netpóstur - vefsíður).
  7. Lyklar á uppsettum hugbúnaði (Microsoft).

Hafir þú áhuga á að nýta þér þessa þjónustu þá eru nánari leiðbeiningar hér.