Þjónustuvefur
| Forsíða |
| Hafa samband |
| Tölvuviðgerðir - Aðstoð |
| Nethjálp - Tengjast |
| Vefumsjónarkerfi |
| Vefsíðugerð - Aðstoð |
| Vefsíðugerð - Tölfræði |
| Upplýsingar um lén |
| Hraðamæling |
| Tölfræði |
| Myndvinnsla |
| Vefumsjónarkerfi |
|
|
|
|
Joomla er líklegast eitt mest notaða vefumsjónarkerfið í dag og hreint ótrúlegt hversu gæði þess eru mikil miðað við að það er "Open Source" sem þýðir að hver sem er getur tekið það til notkunar og má breyta því eftir eigin höfði.
Við hjá PCs erum að þróa og staðfæra hjálpina í Joomla í sjónræna hjálp sem hentar betur fyrir þá sem nota eiga svo vefsvæðin.
Uppsetningin frá PCs er á íslensku og hægt er að bæta við tungumálum á einfaldan hátt.
Nú þegar útgáfa 1.5 af Joomla er að lenda þá förum við auðvitað strax í að þýða hana á Íslensku og í 1.5 verður kerfisstjórnin á Íslensku líka, við höfum reyndar áður verið með kerfisstjórn Joomla/Mambo á Íslensku en í reynd var það aldrei hagstætt þar sem eldri útgáfa var ekki með stuðning við tungumál í kerfisstjórn og við hverja uppfærslu var löng og ströng vinna við þýðingu og breytingu á kerfinu sjálfu of mikil til að bera sig, en það geta þess að þeir notendur sem prófuðu þá útgáfu vildu helst enga aðra.
En vegna þeirra breytinga sem urðu á nýrri útgáfu Joomla (1.5) og hvernig kerfið er uppbyggt þá höfum við hjá PCs tekið þá ávörðun að halda áfram að nota eldra Joomla kerfið (1.0) þar sem það er bæði stöðugra og í raun gefur okkur meiri möguleika á í notkun.
Því hefur verið tekin sú ákvörðun að halda áfram þróun kerfisins (Joomla 1.0) hjá PCs og höfum við þegar breytt kerfisstjórninni umtalsvert.
Nýtt viðmót hefur verið þróað og minnkar það flækjustig vefumsjónarkerfisins og gerir notendum þess kleift að nota kerfisstjórnina á skilvirkari hátt.
Eins og áður var getið þá býður Joomla upp á ótrúlegan fjölda aukahluta sem við höfum nú þegar tileinkað okkur og þýtt á Íslensku, Þar má telja vefverslun, spjallþræði, myndaalbúm, leikjavefi og margt fleira.
Hafðu samband og fáðu tilboð í gerð þinnar síðu eða fáðu okkur til að setja upp síðu til prufu. |